Við hjá Landsneti flytjum raforku og stýrum uppbyggingu flutningskerfisins. Við sjáum fyrir okkur rafvædda framtíð sem er í takt við samfélagið.
Vilt þú taka þátt í að skapa þessa framtíð með okkur?
Í dag eru við um 120 karlar og konur með fjölbreyttan bakgrunn, á þremur stöðum á landinu, sem vinnum saman að þeim markmiðu sem við höfum sett okkur með gildin okkar, samvinnu, ábyrgð og virðingu að leiðarljósi.
Við bjóðum upp á spennandi vinnustað, krefjandi verkefni og tækifæri til að þróast og dafna í metnaðarfullu umhverfi.
Hljómar þetta spennandi? Ef svo er skráðu þig og sendu okkur umsókn.
Hlökkum til að heyra frá þér.